Færsluflokkur: Bloggar
Þriðjudagur, 5. júní 2007
Leitin
Hversu margar blogg-færslur ætli byrji einhvernvegin svona "er svo rosalega andlaus veit bara ekkert hvað ég á að skrifa" eða "hef ekkert að segja veit ekki hvað ég á að blogga um"? Góð ráð við báðum þessum vandamálum er bara að sleppa því að blogga þar til þú hefur eitthvað að segja. Mér leiðist alveg svakalega að lesa færslur sem byrja á þennan hátt og les oftast ekki lengra þar sem upphafið lofar ekki góðu. Ég hef oft fengið hugmynd að bloggi og ætlað mér að skrifa það niður þegar ég sest næst við tölvuna en þegar þangað er komið er allt farið, hausinn tómur engar hugmyndir. Sumum er þetta í blóði borið að geta bloggað skemmtilega texta eins og Guðríður Haraldsdóttir blaðakona sem hefur sett dulin sjarma yfir strætóferðir. Ég hef aldrei haft jafn mikinn áhuga á strætóferðum nokkurs, ekki einu sinni mínum eigin, fyrr en ég byrjaði að lesa bloggið hennar. Þannig texta langar mig að geta skrifað. Gert jafn hversdagslega hluti eins og strætóferðir áhugaverðar er bara snilld.
Ég hef alltaf ætlað mér að skrifa bók. Eina bók. Veit ekki ennþá um hvað hún á að vera en skáldsaga skal það vera og nafnið mitt á kápunni. Ég hef oft fengið hugmyndir að sögu, aðalpersónum, aukapersónum og upphafi, en aldrei enda. Oft á dag fæ ég líka hugmyndir að bloggfærslum, smásögum, ljóðum, viðtalsefni, umfjöllunarefni og fréttum. Oftar en ekki er ég búinn að semja textann í huganum. En eins og svo margt annað í þessum hraða heimi týnist það, verður að engu gleymist og hverfur í huga fullan af tannlækna tímum, innkaupalistum og símanúmerum. Ég hef oft velt því fyrir mér að ganga um með upptökutæki eða blokk og blýant og skrifa niður þessar hugmyndir svo ég geti þá unnið úr þessu seinna eða allavegana svo þetta týnist ekki alveg jafn hratt. Hef bara aldrei látið verða að því. Kannski ég geri það í sumar geri svona smá tilraun og athuga hvort hugmyndirnar mínar eru eitthvað til að tala um eða vinna meira úr. Þó það væri ekki nema mér til ánægju og yndisauka.
Frá því að ég var lítil hefur mig langað til að verða fréttakona. Þegar vinkonur mínar litu upp til og vildu verða alveg eins og einhver söng-eða leikkona horfði ég á fréttirnar og vildi verða eins og Elín Hirst, Edda, eða Jóhanna Vigdís. Svo fóru hormónin að flæða í allt of miklu magni um líkamann minn og ég fékk þá flugu í höfuðið að ég gæti bara ekki verið fréttakona. Fyrir því voru þrjár ástæður: 1) Ég var ekki nógu góð í stafsetningu og gæti því aldrei skrifað flottan texta. 2) Ég væri svo ljót að ég gæti aldrei unnið í sjónvarpi. 3) Ég hefði svo ljóta rödd að ég gæti ekki verið í útvarpi. Þá eru nú ekki margir miðlar eftir ef einhver. Þar af leiðandi vissi ég ekkert hvaða stefnu ég ætti að taka og ráfaði um stefnulaus að reyna að finna eitthvað sem ég gæti hugsað mér að vinna við. Vissulega hefur þessi leit mín leitt mig á marga staði og ég hef lært fullt af hlutum og kynnst fólki sem ég hefði aldrei hitt. En nú hef ég fundið stefnuna og hægt og rólega minka sveiflurnar og ég nálagst ákvörðunar stað. Mikið ofboðslega er það mikill léttir að vita hvað maður vill. Að leita aftur í barnssálina og spyrja hana "hvað var það sem við ætluðum að verða" hlusta á svarið og láta drauminn sem hefur alltaf átt heima í hjartanu mínu rætast. Ég ætla að verða fréttakona og rithöfundur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 26. maí 2007
Halló heimur!
Hef dottið í það undanfarið að lesa blogg sem eru skráð hjá mbl.is þau sem ég hef lesið hef mér þótt að mestu leyti áhugaverð. Inn á milli eru nú náttúrlega blogg frá fólki sem stígur svo sem ekkert fast í sellurnar en þær síður er ég bara voðalega fljót að hætta að lesa. Hér (innan mbl.is) eru nú samt blogg sem ég les nánast daglega mér til ánægju, yndisauka og fróðleiks. Sumar les maður nú af skammarlega mikilli forvitni eins og hjá frægu/þekktu fólki, gömlum skólafélögum og gömlum skotum. Þótt ekkert mikið sé að gerast á þessum bloggum les maður samt og reynir að lesa á milli línanna og oftar en ekki þá les maður vitlaust.
En to da point. Ég sem sagt ákvað að skrá mig hér inn á þetta blogg í þeirri veiku von að geta komið frá mér áhugaverðum texta um heima og geima, allt og ekkert, salt og pipar og lífið og tilveruna. Þá er það bara að fara að sníkja sér vini auðvitað voða leiðinlegt að hafa engan undir titlinum "bloggvinir"
fúff þarf að kynna mér betur púka-kostinn læt þennan út óyfirlesinn.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 03:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)