sunnudagsþankar

ég elska

  • að fara í laanga sturtu, helst með olíu og salti.
  • að bera á mig krem með góðri lykt
  • setja Billy Holiday á spilarann, fá mér heit te og stara útum gluggann og láta mig dreyma
  • gott hvítvínsglas með góðri vinkonu
  • allar þær stundir sem ég á með mínum tilvonandi eiginmanni
  • að geta verið í skóla
  • að vera búinn að ákveða hvað ég ætla að læra þegar ég verð stór
  • tilhugsunina um að eftir smá tíma verði ég gift sálufélaganum, besta vininum og stóru ástinni minni
  • heita golu og sól
  • að lesa góða bók
  • að fara í sund
  • bjartan kaldan vetrardag
  • að liggja í heitum potti í grenjandi rigningu

en það sem ég mundi samt vilja

  • að allir gætu farið í sturtu á hverjum degi og látið sig dreyma yfir tebolla
  • að ég væri ekki svona drullustressuð yfir því að fara í Háskóla
  • að ég næði af mér tugum kílóa fyrir stóra daginn
  • að þvottahúsið, geymslan, og eldhúsið væri ekki eitt og sama herbergið í íbúðinni
  • að ég sæi bæði sjó og fjöll útum gluggana mína
  • að ég væri aðeins minna löt
  • að ég kæmist í heimsókn til vinkvenna minna útum allan heim
  • að við kæmumst í brúðkaupsferð í sumar
  • að ég kynni að baka brauð og elda góðan mat

Eigið friðsaman hvíldardag

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

mmmm heitur pottur í slagviðri! Eða jafnvel enn betra, í snjókomu og skafrenningi! Bara rétt hausinn upp úr og stundum jafnvel bara nefið....

Hrönn Sigurðardóttir, 4.3.2009 kl. 19:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband